„Það er að sjálfsögðu mjög sérstök tilfinning að standa úti á Old Trafford í Manchester eftir að hafa lagt stórlið á borð við Manchester United að velli," sagði Hermann Hreiðarsson við Morgunblaðið eftir hinn frækna sigur Portsmouth gegn United á Old Trafford á laugardaginn.
„Við sátum flestir inni í búningsklefanum í rúmlega hálftíma eftir leikinn og sögðum varla orð. Menn trúðu þessu varla en í dag er ég gríðarlega stoltur af því að hafa tekið þátt í þessum sigri með mínu liði. Þetta verður án efa einn af þeim leikjum sem maður mun rifja endalaust upp þegar ferlinum er lokið,“ sagði Hermann Hreiðarsson en hann fær ósk sína uppfyllta að leika í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar með Portsmouth.
Sjá nánar viðtal við Hermann um sigurinn og framhaldið hjá Portsmouth í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.