Steven Gerrard: Held að enginn vilji mæta okkur

Steven Gerrard og félagar hans höfðu ástæðu til að fagna …
Steven Gerrard og félagar hans höfðu ástæðu til að fagna í kvöld. Reuters

„Ég held að enginn vilji mæta okkur í átta liða úrslitunum," sagði Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, eftir sigurinn á Inter í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á San Síró í kvöld en með honum tryggði Liverpool sér sæti í 8 liða úrslitunum.

Gerrard hrósaði Fernando Torres eftir leikinn en Torres skoraði sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik.
 ,,Við erum heppnir að Fernando - hann þarf bara eitt færi. Þar til að brottrekstrinum kom var þetta mjög erfiður leikur en eftir það réðum við ferðinni og fórum á sannfærandi hátt áfram," sagði Gerrard.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert