Beckham getur keypt LA Galaxy

David Beckham er með góðar tekjur hjá LA Galaxy og …
David Beckham er með góðar tekjur hjá LA Galaxy og gæti gerst eigandi félagsins síðar meir. Reuters

Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham er með ákvæði í samningi sínum við bandaríska félagið LA Galaxy um að hann geti keypt félagið þegar samningur hans við það rennur út. Þetta var fullyrt í fréttaþættinum kunna, 60 mínútur, á CBS-sjónvarpsstöðinni.

Beckham gerði fimm ára samning við LA Galaxy á síðasta ári en árslaun hans þar eru talin vera um einn milljarður króna „Við gefum ekkert út á vangaveltur. David Beckham einbeitir sér að því að spila með Galaxy og enska landsliðinu," sagði talsmaður Beckhams við fréttastofu AP.

Beckham er í enska landsliðshópnum sem mætir Frökkum á miðvikudaginn kemur, og þremur dögum síðar á hann að spila fyrsta deildaleikinn á nýju tímabili í Bandaríkjunum, með LA Galaxy gegn Colorado Rapids.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert