Cristiano Ronaldo og Nani, leikmenn Manchester United, verða ekki með Portúgölum þegar þeir mæta Grikkjum í vináttuleik í Düsseldorf í Þýskalandi á miðvikudaginn.
Þeir Ronaldo og Nani, sem báðir skoruðu fyrir United í 3:0 sigri á Liverpool á Old Trafford í gær, eru lítillega meiddir og í samráði við lækni portúgalska landsliðsins var ákveðið að þeir tækju ekki þátt í leiknum.
Báðar þjóðir eru undirbúa sig fyrir Evrópumótið í Sviss og Austurríki í sumar en þar eiga Grikkir Evrópumeistaratitil að verja.