Chelsea endurheimti annað sætið í ensku úrvalsdeildinni með 1:0 sigri gegn Middlesbrough á Stamford Bridge í dag. Portúgalski landsliðsmaðurinn Ricardo Carvahlo skoraði sigurmarkið með skalla á 4. mínútu og er Chelsea nú fimm stigum á eftir Englandsmeisturum Manchester United.
Chelsea þurfti svo sannarlega að hafa fyrir sigrinum en Middlesbrough var afar óheppið að ná ekki að jafna metin í seinni hálfleik en þvívegis áttu leikmenn Boro skot í slá og stöng Chelsea marksins.