Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Portsmouth gerðu góða ferð á Upton Park í kvöld þar sem þeir lögðu heimamenn í West Ham að velli, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni. Króatinn Niko Kranjcar skoraði sigurmarkið á 61. mínútu. Portsmouth er í 6. sæti með 56 stig, er fjórum stigum á eftir Everton en West Ham er í 10. sætinu með 44 stig.