Hleb sagður vera búinn að semja við Inter

Alexandr Hleb í leik með Arsenal gegn Bolton.
Alexandr Hleb í leik með Arsenal gegn Bolton. Reuters

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Hvít-Rússinn Alexandr Hleb leikmaður Arsenal hafi gert samkomulag við Ítalíumeistara Inter um að ganga í raðir liðsins í sumar. Hleb er sagður vera búinn að handsala fimm ára samning sem tryggir honum 3 milljónir evra í árslaun, 350 milljónir króna.

Hleb hefur undanfarnar vikur verið orðaður við Inter og fregnir bárust af því fyrir nokkru að hann hafi átt leynilegan fund með forráðamönnum félagsins daginn fyrir leik Arsenal og AC Milan í Meistaradeildinni. Inter menn neituðu þessum fréttum en fram kemur í ítölskum blöðum í dag að Hleb fari til Inter í sumar.

Talið er að Inter greiði 14 milljónir evra, 1,6 milljarða króna, fyrir Hleb, sem er 26 ára gamall miðjumaður. Honum er ætlað að fylla skarð Portúgalans Luis Figo.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert