Hollenski knattspyrnumaðurinn Rafael van der Vaart sem leikur með Hamburger SV í Þýskalandi hefur gefið til kynna að hann hafi áhuga á að fara til enska liðsins Chelsea í sumar en hann vill komast til stærra félags en þess þýska.
Van der Vaart sagði við þýska blaðið Sport Bild í dag að það væri útilokað fyrir sig að gefa einhver loforð varðandi áframhaldandi dvöl í Hamborg. „Ég vonast til að fá allt á hreint sem fyrst en ég get ekki farið að fullyrða í júlí að ég fari hvergi. Hvað ef Chelsea eða annað stórlið kemur í lok ágúst og býður 30 milljón evrur í mig? Ég myndi vilja fara, jafnvel þótt það væri á síðustu mínútu áður en lokað er fyrir félagaskiptin," sagði Hollendingurinn.
Chelsea hefur lengi verið orðað við van der Vaart sem er 25 ára gamall sóknartengiliður og hefur skorað 12 mörk í 50 landsleikjum fyrir Holland. Hann er að ljúka sínu þriðja tímabili með Hamburger SV en lék áður í fimm ár með Ajax þar sem hann skoraði 52 mörk í 117 deildaleikjum.