Serbneski varnarmaðurinn Nemanja Vidic er byrjaður að æfa aftur með Manchester United eftir meiðsli og eru forráðamenn Englandsmeistaranna vongóðir um að geta teflt honum fram í leiknum gegn Blackburn á Ewood Park á laugardaginn.
Vidic hefur verið frá í síðustu þremur leikjum Manchester United vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum við Roma í Meistaradeildinni en hann mætti á æfingu í gær og er á góðum batavegi.
Þá hefur franski sóknarmaðurinn Louis Saha jafnað sig af meiðslum en hann hefur verið frá keppni síðasta mánuðinn.