Newcastle gulltryggði sér áframhaldandi sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með öruggum sigri á Sunderland, 2:0, í nágrannaslag á St. James' Park.
Michael Owen kom Newcastle yfir strax á 4. mínútu, 1:0, með fallegu skallamarki. Á lokamínútu fyrri hálfleiks fékk Newcastle vítaspyrnu og Michael Owen skoraði sitt annað mark, 2:0. Þetta er sjötti leikur Newcastle í röð án taps og í fjórða skipti í fimm leikjum sem lið Kevins Keegans fær ekki á sig mark.
Newcastle er komið með 42 stig í 12. sætinu, jafnmörg stig og Tottenham. Sunderland er áfram í 15. sæti með 36 stig og er enn í fallhættu, en liðið er fimm stigum fyrir ofan Birmingham sem er í þriðja neðsta sætinu.