Óvíst með Gerrard gegn Chelsea

Steven Gerrard er meiddur á hálsi.
Steven Gerrard er meiddur á hálsi. Reuters

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, gæti misst af fyrri leiknum gegn Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu sem fram fer á Anfield á þriðjudagskvöldið.

Gerrard meiddist á hálsi fyrir helgina og lék ekki gegn Fulham í gær. „Við vitum ekki hvernig verður með hann eins og er. Steven er í umsjón sjúkraþjálfaranna og er á batavegi en það er of snemmt að segja til um þetta. Þegar um hálsmeiðsli er að ræða verða menn alltaf að vera varkárir," sagði Benítez við BBC.

Sami Hyypiä og Javier Mascherano meiddust báðir í leiknum gegn Fulham í gær en Benítez taldi að þeir yrðu báðir í lagi á þriðjudaginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert