Frank Lampard varafyrirliði Chelsea sagði eftir jafnteflið við Liverpool á Anfield í kvöld að Chelsea hefði átt jafnteflið skilið en viðurkenndi að heppnisstimpill hefði verið á markinu sem Riise skoraði undir lokin.
„Mér fannst við verðskulda þessi úrslit. Liverpool fékk góð færi en við engum okkar og börðust allt til enda. Ég verð að hrósa Salomon Kalou. Hann kom frískur inná í seinni hálfleik og sendingin hans varð að marki. Þá sýndi Petr Cech að hann er besti markvörður heimi,“ sagði Lampard.