Frank Lampard, verður ekki með liði Chelsea þegar það mætir Manchester United í ensku deildinni á morgun. Móðir hans dó í vikunni og er það ástæða þess að hann verður ekki Chelsea.
Lampard missti af leikjum Liverpool á móti Wigan og Everton vegna veikinda móður sinnar og svo gæti farið að hann yrði ekki með liðinu þegar það mætir Liverpool í síðari undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar.
„Félagið mun styðja við bakið á honum eins og það mögulega getur,“ segir í tilkynningu frá Chelsea.