Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segist vera nokk sama hvort það verður Chelsea eða Liverpool sem hans menn mæti í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni á Luzhniki vellinum í Moskvu þann 21. maí en telur þó að það geti verið auðveldara fyrir stuðningsmenn United að nálgast miða á leikinn komist Liverpool í úrslitaleikinn.
„Úrslitaleikur á móti Liverpool yrði frábær leikur og ég held að það geti reynst auðveldara fyrir stuðningsmenn okkar að útvega sér miða á þann leik frekar ef Chelsea kemst í úrslitin. Annars er mér alveg sama hvoru liðinu við mætum,“ sagði Ferguson sem ætlar að vera á Stamford Bridge í kvöld og berja augum viðureign Chelsea og Liverpool.