Liverpool með Behrami í sigtinu

Valon Behrami í búningi Lazio.
Valon Behrami í búningi Lazio. Reuters

Fregnir frá Sviss herma að Liverpool hafi augastað á svissneska varnarmanninum Valon Behrami sem leikur með með Lazio á Ítalíu. Behrami er 22 ára gamall svissneskur landsliðsmaður sem hefur vakið athygli margra liða.

Auk Liverpool hafa lið á borð við Bayner München, Fiorentina, AC Milan, Valencia, Sevilla og Manchester City sýnt Behrami áhuga en hann getur spilað bæði sem bakvörður og kantmaður.

Behrami hóf feril sinn með Lugano í Sviss árið 2002 en hann gekk í raðir Lazio fyrir tveimur árum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert