Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, vill fá Eið Smára Guðjohnsen frá Barcelona og Peter Crouch frá Liverpool í sumar til að styrkja sitt lið fyrir átökin á næsta keppnistímabili, samkvæmt frétt í enska blaðinu Daily Mirror í dag.
Sagt er að West Ham, Newcastle og Fulham hafi öll haft augastað á Eiði að undanförnu en Redknapp telji hinn 29 ára gamla Íslending vera einn klókasta sóknarmanninn í evrópska fótboltanum.
Blaðið segir jafnframt að Redknapp sé búinn að bjóða Liverpool sjö milljónir punda í hinn hávaxna Peter Crouch, framherja enska landsliðsins.