Celtic varð í kvöld skoskur meistari í 42. sinn og þriðja árið í röð þegar liðið sigraði Dundee United, 1:0, á útivelli í lokaumferð skosku úrvalsdeildarinnar. Á sama tíma töpuðu erkifjendurnir og aðalkeppinautarnir í Rangers fyrir Aberdeen á útivelli, 2:0, en fyrir lokaumferðina voru Celtic og Rangers jöfn að stigum.
Hollenski markahrókurinn Jan Vennegoor of Hesselink skoraði sigurmark Celtic á 72 mínútu en Celtic hlaut 89 stig í deildinni en Rangers 86.