Cristiano Ronaldo, markakóngur Meistaradeildarinnar og leikmaður Manchester United, segist ekki ætla að lofa neinu varðandi það hvar hann muni leika á næstu leiktíð.
Kappinn hefur ítrekað verið orðaður við Real Madrid en hann á fjögur ár eftir af samningi sínum við United. Eftir sigurinn í Meistaradeildinni í gær spurði fréttamaður BBC hann um framhaldið og svarið var einfalt: „Ég verð áfram hjá United.“
Hann var síðan í viðtali á Radio 5 Live og þar var hann ekki alveg eins öruggur um framhaldið. „Ég lofa engu. Ég lofa móður minni engu og ég lofa stuðningsmönnunum engu. Ég vil vera áfram hjá United, en maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sínu. Við verðum að sjá til næstu tvær vikurnar því málin hljóta að skýrast á þeim tíma,“ sagði Ronaldo.