Tottenham er við það að ná samningi við Barelona um kaup á Mexíkóanum Giovani Dos Santos að því er fram kemur í breskum fjölmiðlum í dag. The Mirror segir að að Tottenham greiði 12,5 milljónir punda, 1,8 milljarða króna, fyrir leikmanninn.
Giovani er sókndjarfur miðjumaður sem fékk að spreyta sig þó nokkuð með Börsungum á leiktíðinni og verði af kaupunum er hann annar leikmaðurinn sem Tottenham fær til sín í vor en félagið keypti miðjumanninn Luca Modric frá Dinamo Belgrad fyrir 16,8 milljónir punda en Modric er króatískur landsliðsmaður.
Giovani er fæddur í Mexíkó en móðir hans er mexíkönsk en faðir hans Brasilískur, Zizinho, sem lék á árum áður með brasilíska landsliðinu.