Terry og Gerrard tryggðu Englandi sigur

Steven Gerrard skorar í kvöld og kemur Englandi í 2:0.
Steven Gerrard skorar í kvöld og kemur Englandi í 2:0. Reuters

England sigraði Bandaríkin nokkuð auðveldlega, 2:0, í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór á Wembley-leikvanginum í London í kvöld.

John Terry kom Englandi yfir með skalla á 38. mínútu, eftir fyrirgjöf frá David Beckham. Það var síðan Steven Gerrard sem tryggði sigurinn með marki á 59. mínútu eftir sendingu frá varamanninum Gareth Barry.

Lið Englands: David James - Wes Brown (Glen Johnson 57.), Rio Ferdinand, John Terry, Ashley Cole (Wayne Bridge 82.) - David Beckham (David Bentley 46.), Owen Hargreaves, Steven Gerrard, Frank Lampard (Gareth Barry 57.) - Jermain Defoe (Peter Crouch 68.), Wayne Rooney (Joe Cole 78.)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert