England sigraði Trínidad og Tóbagó, 3:0, í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór í kvöld í Port of Spain, höfuðborg Karíbahafsríkisins.
Gareth Barry kom Englandi yfir á 12. mínútu. Stewart Downing átti þá fína sendingu á Wayne Bridge sem lagði boltann fyrir fæturna á Barry sem skorað sitt fyrsta mark fyrir enska landsliðið.
Á 16. mínútu komst England í 2:0. Downing var aftur á ferð og sendi á Jermain Defoe sem skoraði.
Defoe gerði síðan sitt annað mark á 49. mínútu, eftir fyrirgjöf frá David Bentley, 3:0. Enska liðið fór illa með góð færi til að vinna enn stærri sigur.