Spænski knattspyrnumaðurinn Xabi Alonso hjá Liverpool, sem hefur þrálátlega verið orðaður við ítalska liðið Juventus að undanförnu, segist ekki ætla að ákveða eitt né neitt fyrr en að loknu Evrópumótinu í knattspyrnu.
„Ég veit af áhuga Juventus á mér. En í augnablikinu hugsa ég ekki um neitt annað en spænska landsliðið, enda er um nóg að hugsa hvað það varðar núna,“ sagði Xabi Alonso í samtali við erlenda fjölmiðla