Brasilíumaðurinn Luiz Felipe Scolari, þjálfari portúgalska landsliðsins, hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska félagsins Chelsea, að því er enskir fjölmiðlar tilkynntu rétt í þessu.
Scolari tekur við af Avram Grant sem var sagt upp störfum í vor en Brasilíumaðurinn stýrði Portúgölum til sigurs á Tékkum á EM fyrr í dag, 3:1.
Scolari tekur við liði Chelsea 1. júlí.