Xabi Alonso nálgast Juventus

Dagar Xabi Alonso hjá Liverpool virðast taldir.
Dagar Xabi Alonso hjá Liverpool virðast taldir. Reuters

Ítalska dagblaðið Corriere dello Sport greinir frá því að það sé aðeins dagaspursmál hvenær gengið verði frá félagsskiptum hins spænska Xabi Alonso frá Liverpool til Juventus. Samkvæmt blaðinu er fyrirhugaður fundur hjá forráðamönnum Juventus með Rafa Benitez, knattspyrnustjóra Liverpool og Inanki Ibanez umboðsmanni Xabi Alonso í Liverpool á mánudag eða þriðjudag.

Liverpool vill losna við leikmanninn sem fyrst svo að liðið geti gengið frá kaupum á Gareth Barry sem fyrst. Vill Liverpool fá 20 milljónir evra fyrir Alonso, en Juventus vill greiða 15 milljónir. Er talið líklegt að endanlegt kaupverð verði um 17 milljónir evra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert