Svissneski varnarmaðurinn Philipp Degen skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Liverpool en þessi 25 ára gamli leikmaður, sem var í leikmannahópi Sviss á EM, kemur til Liverpool frá þýska liðinu Dortmund.
„Philipp er enn ungur en hann hefur öðlast mikla reynslu með því að spila í þýsku Bundesligunni og með svissneska landsliðinu. Hann hefur einnig leikið með Basel í Meistaradeildinni svo hann er vanur að spila í toppdeildum. Hann á eftir að styrkja okkar hóp,“ segir Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool á vef félagsins.