Nígeríumaðurinn Celestine Babayaro er kominn til bikarmeistara Portsmouth þar sem hann verður til reynslu næstu dagana. Babayaro leikur í stöðu vinstri bakvarðar en Hermann Hreiðarsson spilaði í þeirri stöðu með Portsmouth á síðustu leiktíð og átti góðu gengi að fagna með liðinu.
Babayaro er 29 ára gamall sem var leystur undan samningi við Newcastle í desember á síðasta ári eftir langvarandi meiðsli en þar áður var hann í herbúðum Chelsea og lék með því frá 1997 til 2005.