Crouch: Frábært að vera kominn aftur

Peter Crouch er búinn að semja við Portsmouth til fjögurra …
Peter Crouch er búinn að semja við Portsmouth til fjögurra ára. Reuters

Peter Crouch var nú í hádeginu kynntur til sögunnar sem nýjasti liðsmaður Portsmouth en hann gerði fjögurra ára samning við félagið. Crouch kemur til bikarmeistaranna frá Liverpool og er þetta í annað sinn sem framherjinn hávaxni gengur í raðir liðsins og í þriðja sinn sem hann leikur undir stjórn Harry Redknapp.

Crouch er dýrasti leikmaðurinn í sögu Portsmouth en kaupverðið er 11 milljónir punda, 1,7 milljarðar íslenskra króna.

„Það er frábært að vera kominn aftur. Ég held að Harry Redknapp muni laða fram það besta í mér og ég hef fulla trú á að að ég eigi í vændum bestu árin á ferli mínum. Portsmouth er frábært félag sem svo sannarlega stefnir í rétta átt,“ sagði hinn 27 ára gamli Crouch.

Crouch gekk til liðs við Liverpool árið 2005 og skorað 42 mörk í 135 leikjum með því. Hann lék með Portsmouth á árunum 2001-02 og skoraði 18 mörk í 37 leikjum en hann hefur einnig leikið með Tottenham, Aston Villa, Norwich og Southampton.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert