Guðjón ekki til Hearts

Guðjón Þórðarson á varamannabekk Skagamanna.
Guðjón Þórðarson á varamannabekk Skagamanna. mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Skoska knattspyrnuliðið Hearts í Edinborg réð í dag Ungverjann Csaba Laszlo sem þjálfara félagsins en Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna, var einn þeirra sem orðaður var við starfið.

Laszlo hefur stýrt landsliði Úganda um nokkurt skeið en var áður við stjórnvölinn hjá ungverska liðinu Ferencváros og hjá þýska liðinu Borussia Mönchengladbach. Hann gerði þriggja ára samning við Hearts og tekur við liðinu af Stevie Frail sem ráðinn var tímabundinn í þjálfarastarfið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert