Martin O'Neill, knattspyrnustjóri Aston Villa hefur staðfest að Arsenal hafi spurst fyrir um Gareth Barry og hugsanlegt að félagið muni blanda sér í baráttuna við Liverpool um að krækja í leikmanninn snjalla. Liverpool hefur lagt nokkur tilboð í Barry í sumar en forráðamönnum Aston Villa hefur ekki litist nægilega vel á þau tilboð og vilja fá meira fyrir leikmanninn en Liverpool hefur boðið.
Arsenal leitar nú manns til að leysa stöðu Frakkans Matheu Flamini af hólmi sem gekk til liðs við AC Milan í sumar. Gæti Barry hentað í þá stöðu.