Fulham fékk í kvöld tvo nýja leikmenn í sínar raðir og koma þeir báðir frá Íslendingaliðinu West Ham. Framherjinn Bobby Zamora og varnarmaðurinn John Pantil skrifuðu undir samninga við Fulham sem greiðir West Ham 6,2 milljónir punda, 970 milljónir króna.
Zamora hefur verið í herbúðum West Ham frá árinu 2004 en kom aðeins við sögu í 14 leikjum liðsins á síðustu leiktíð. Pantsil, sem er landsliðsmaður Ghana, kom til West Ham fyrir tveimur árum en var aðeins í byrjunarliðinu í sjö leikjum.