AC Milan staðfesti nú í kvöld að það hafi náð samkomulagi við Barcelona um kaup á brasilíska framherjanum Ronaldinho. Brasilíumaðurinn snjalli fer í læknisskoðun í höfuðstöðvum Mílanóliðsins á morgun og mun eftir hana skrifa undir samning sem gildir til 30. júní 2011.
Manchester City var á höttunum eftir Ronaldinhio og bauð í hann 25,5 milljónir en úr varð að Brasilíumaðurinn náði samkomulagi við AC Milan. Að því er fram kemur í ítalska blaðinu Gazzetta dello Sport greiðir AC Milan aðeins 14,6 milljónir punda.