Allt útlit er fyrir að Fulham gangi frá kaupunum á sóknarmanninum Bobby Zamora frá West Ham í dag.
Féelögin hafa þegar náð samkomulagi um kaupverðið á leikmanninum og verður sóknarmaðurinn formlega kynntur til sögunnar hjá Fulham á næstu dögum. Hann gekkst í gær undir læknisskoðun hjá væntanlegum vinnuveitendum sínum og fátt sem virðist í veginum fyrir að gengið verði frá málinu í dag.