Aliaksandr Hleb kemur til Barcelona í dag og mun gangast undir læknisskoðun samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu Barcelona.
Hleb hefur leikið síðustu þrjú tímabil með Arsenal. Hann mun fara í læknisskoðun á sjúkrahúsi í Barcelona í dag og síðan munu læknar félagsins skoða hann enn frekar.
„Ef hann stenst þessa athugun þá mun hann skrifa undir á morgunn og vera þá kynntur til sögunnar sem leikmaður Barcelona,“ segir á heimasíðu félagsins. Talið er að Barcelona hafi boðið honum þriggja ára samning.
Hleb sagði á dögunum að hann væri þakklátur Arsenal og Arsene Wenger stjóra félagsins fyrir allt sem gert hafi verið fyrir hann. Hann sagðist hins vegar orðinn leiður á lífinu í Lundúnum, hraðanum og látunum.