Danska liðið OB og Aston Villa skildu jöfn í kvöld, 2:2, í fyrri viðureign liðanna í 3. umferð Intertoto-keppninnar í knattspyrnu en liðin áttust við á heimavelli OB í Óðinsvéum.
Skandinavarnir John Carew frá Noregi og Martin Laursen frá Danmörku skoruðu mörk Villa í leiknum en fyrir Odense skoruðu Steve Sidwell, sjálfsmark, og Anders Møller Christensen.
Liðin sem sigra samanlagt í 3. umferðinni komast í UEFA-bikarinn og það er því til mikils að vinna.