Chelsea neitar að hafa gert Eto'o tilboð

Samuel Eto'o framherji Barcelona.
Samuel Eto'o framherji Barcelona. Reuters

Forráðamenn Chelsea neitar því að hafa gert tilboð í kamerúnska framherjann Samuel Eto'o hjá Barcelona en Eto'o lét hafa eftir sér í gær að hann hefði tilboð upp á vasann frá Lundúnaliðunum Chelsea og Tottenham ásamt Inter Milan.

Chelsea-menn eru staddir í æfinga- og keppnisferð í Kína og talsmaður félagsins greindi frá því í gærkvöld að félagið hafi ekki gert Eto'o tilboð en Kamerúninn er staddur í Edinborg í Skotlandi ásamt félögum sínum í liði Barcelona sem mæta Hiberninan í æfingaleik í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert