Chelsea hefur boðið Frank Lampard nýjan fimm ára samning að því er fram kemur í netútgáfu breska blaðsins Daily Telegraph. Samningurinn er metinn á 39 milljónir punda, 6,2 milljarða króna, og með honum yrði Lampard launahæsti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni og í Evrópu með 150.000 pund í vikulaun, jafnvirði rúmlega 24 milljónir króna.
Lampard hefur sterklega verið orðaður við Ítalíumeistara Inter en Jose Mourinho þjálfari Mílanóliðsins vill ólmur fá Lampard í sínar raðir.