Barry gæti enn gengið til liðs við Liverpool

Gareth Barry.
Gareth Barry. Reuters

Martin O'Neill stjóri Aston Villa skrifaði enn einn þáttinn í sápuóperunni um knattspyrnumanninn Gareth Barry þegar hann gaf í skyn að það væri enn möguleiki á því að Barry yfirgæfi Aston Villa og gengi til liðs við Liverpool.

Síðasta miðvikudag þótti nokkuð ljóst að Barry yrði áfram í herbúðum Villa eftir að félagið hafnaði því sem átti að vera síðasta tilboð Liverpool í leikmanninn. „Ég held að það sé best að loka ekki neinum dyrum og halda bara öllu opnu. Við setjum enga lokadagsetningu. Liverpool hefur allan tíma í heiminum til að kaupa Barry,“ sagði O'Neill eftir að hafa rætt við Barry og umboðsmann hans. „Ef Liverpool tekst samt ekki að skrapa saman í uppsett verð fyrir Barry, þá geta þeir bara sjálfum sér um kennt og engum öðrum,“ sagði O'Neill.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert