Steven Gerrard, fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Liverpool, fór meiddur af velli í kvöld þegar liðið vann öruggan sigur, 4:1, á Vålerenga í æfingaleik í Ósló.
Gerrard tognaði í nára og fór af velli eftir aðeins 25 mínútna leik og nú er óvíst hvort hann verði tilbúinn þegar keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst um aðra helgi.
Xabi Alonso, Fernando Torrres, Yossi Benayoun og David Ngog skoruðu fyrir Liverpool en Bojan Zagic svaraði fyrir Vålerenga og jafnaði þá 1:1 í byrjun síðari hálfleiks.