Enska knattspyrnufélagið West Ham, sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar, hefur gefið út yfirlýsingu um að Alan Curbishley knattspyrnustjóri hafi ekkert haft með samninga við Fredrik Ljungberg að gera. Eggert Magnússon hafi séð um þá.
Ljungberg var leystur undan samningi sínum við West Ham á dögunum, aðeins ári eftir að hann var keyptur af Arsenal og gerður við hann mjög hár launasamningur.
Scott Duxbury framkvæmdastjóri West Ham birti eftirfarandi yfirlýsingu á vef félagsins vegna frétta enskra fjölmiðla um mál Ljungbergs:
„Fyrrum stjórnarformaður félagsins, Eggert Magnússon, sá um kaupin á Fredrik Ljungberg í júlí 2007 og knattspyrnustjórinn Alan Curbishley kom hvergi nærri fjárhagslegum þáttum í þeim samningum. Hann hefur aldrei komið að slíkum málum. Öll fjármál eru á hendi stjórnar en knattspyrnustjórinn er hinsvegar í lykilhlytverki í því að finna leikmenn og mæla með að þeir séu keyptir.
Eins og áður hefur komið fram var samkomulagt gert um starfslok Ljungbergs og þau voru samkvæmt hagsmunum félagsins og leikmannsins. Þessi ákvörðun var tekin útfrá fótboltanum sjálfum þar sem þessi 31 árs gamli miðjumaður hefði fengið takmörkuð tækifæri með aðalliðinu á komandi keppnistímabili, og hún gefur félaginu meira svigrúm í launamálum."