Aron Einar lék með í sigri Coventry

Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson. mbl.is/Árni Sæberg

Aron Einar Gunnarsson og félagar hans í Coventry komust í kvöld áfram í 2. umferð í ensku deildabikarkeppninni þegar liðið sigraði Aldershot, 3:1, á heimavelli sínum, Ricoh Arena. Aron var í byrjunarliðinu en var skipt útaf á lokamínútu leiksins. Hann nældi sér í gult spjald á 21. mínútu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert