Barry tilbúinn til að spila gegn FH

Gareth Barry verður með gegn FH.
Gareth Barry verður með gegn FH. Reuters

Martin O'Neill, knattspyrnustjóri Aston Villa, staðfesti við sjónvarpsstöð félagsins í kvöld að enski landsliðsmaðurinn Gareth Barry væri tilbúinn til að spila með liðinu gegn FH á Laugardalsvellinum í UEFA-bikarnum annað kvöld.

Óvissan um framtíð Barrys hjá félaginu hefur verið mikil í sumar en Villa er búið að hafa tilboðum frá Liverpool í hann. Ef Barry spilar gegn FH yrði hann ekki gjaldgengur með Liverpool í Evrópukeppni í haust, færi hann þangað.

Barry kom með Aston Villa til Íslands og æfði með liðinu á Laugardalsvellinum í kvöld. O'Neill sagði á vef Villa að þjálfararar liðsins hefðu rætt við Barry eftir æfinguna og hann væri tilbúinn og spenntur fyrir því að spila, sem væru frábærar fréttir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert