Agbonlahor með nýjan samning við Aston Villa

Gabriel Agbonlahor í baráttu við Wayne Rooney.
Gabriel Agbonlahor í baráttu við Wayne Rooney. Reutrs

Garbriel Agbonlahor framherji Aston Villa er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við félagið en Agbonlahor skoraði þriðja mark Aston Villa í leiknum gegn FH-ingum á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Þessi eldfljóti sóknarmaður er nú samningsbundinn Villa til ársins 2012.

Þar með hafa tveir af framherjum liðsins fest ráð sitt hjá félaginu á síðasta sólarhring en Norðmaðurinn John Carew framlengdi í gær samning sinn við félagið og er samningsbundinn því til ársins 2011.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert