Gerrard hefur hrist af sér meiðslin

Steven Gerrard verður með Liverpool gegn Sunderland á morgun.
Steven Gerrard verður með Liverpool gegn Sunderland á morgun. Reuters

Steven Gerrard fyrirliði Liverpool hefur hrist af sér meiðslin og verður með sínum mönnum á morgun þegar þeir heimsækja Sunderland í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Gerrard hefur ekki gengið heill til skógar síðustu vikurnar og lék aðeins 25 síðustu mínúturnar gegn Standard Liege í Meistaradeildinni í fyrrakvöld.

Óvissa ríkir um þátttöku Xabi Alonso og Yossi Benayoun en báðir urðu þeir fyrir meiðslum í Evrópuleiknum. Slóvakinn Martin Skrtel er hins vegar ekki klár í slaginn en hann glímir við nárameiðsli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert