Thomas til Portsmouth

Jerome Thomas er kominn til Portsmouth.
Jerome Thomas er kominn til Portsmouth. Reuters

Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Portsmouth fengu nýjan leikmann til liðs við sig í dag en kantmaðurinn Jerome Thomas er kominn í herbúðir bikarmeistaranna í láni frá Charlton en hann og Hermann léku saman hjá Charlton.

Lánsamningurinn gildir út leiktíðina en Portsmouth hefur síðan möguleika á að semja við leikmanninn til framtíðar.

Thomas, sem 25 ára gamall, hefur verið hjá Charlton frá því í janúar 2004. Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, reyndi að Thomas til liðsins í janúar en Charlton féllst ekki á að hleypa honum í burtu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert