Fabio Capello landsliðsþjálfari Englendinga mun í dag tilkynna um framtíðarfyrirliða landsliðsins en Capello hefur skipt fyrirliðabandinu á milli fjögurra leikmanna frá því hann tók við þjálfun landsliðsins. Við því er búist að Rio Ferdinand miðvörður Manchester United verði fyrir valinu en Englendingar taka á mótii Tékkum í vináttuleik á Wembley annað kvöld.
John Terry, Steven Gerrard og David Beckham hafa líkt og Ferdinand borið fyrirliðabandið frá því Capello tók við stjórnini en Terry var fyrirliði landsliðsins þegar Steve McClare var þjálfari landsliðsins á undan Capello.