Arsenal hefur blandað sér í baráttuna um franska varnarmanninn Mikael Silvestre, leikmann Manchester United. Í gær bárust af því fregnir að Sunderland væri reiðubúið að greiða 750.000 pund fyrir Frakkann en breskir fjölmiðlar greina frá í morgun að Arsenal vilji fá Silvestre sem hefur leikið með Manchester United undanfarin níu ár.