Norður-írski landsliðsmaðurinn Steve Davis er genginn í raðir skoska úrvalsdeildarliðsins Rangers frá enska úrvalsdeildarliðinu Fulham. Kaupverðið er talið vera um 3 milljónir punda en þessi 23 ára gamli miðvallarleikmaður lék sem lánsmaður með Rangers seinni hlutann á síðustu leiktíð.