Enska knattspyrnufélagið Chelsea stækkaði leikmannahóp sinn í dag með því að fá portúgalska framherjann Fabio Paim lánaðan frá Sporting Lissabon út þetta keppnistímabil.
Paim er tvítugur og var í láni hjá portúgalska liðinu Pacos da Ferreira á síðasta tímabili en hann er samningsbundinn Sporting til 2010. Chelsea hefur kauprétt á honum næsta vor. Hann kemur í staðinn fyrir Claudio Pizarro sem á dögunum var lánaður til þýska liðsins Werder Bremen.