Aukinn áhugi á Zigic

Nikola Zigic endar sennilega í ensku úrvalsdeildinni.
Nikola Zigic endar sennilega í ensku úrvalsdeildinni. Reuters

Sunderland, Aston Villa og Everton hafa öll bæst í þann hóp félagsliða sem áhuga hafa að fá Serbann Nikola Zigic í sínar raðir.

Zigic sem leikur með Valencia á Spáni má fara enda ekki í náðinni hjá nýjum þjálfara liðsins. Er kappinn því til sölu eða láns og er það lánsmöguleikinn sem hefur vakið áhuga úrvalsdeildarfélaganna þriggja enda hefur Zigic sannað sig sem ágætur framherji og á köflum frábær.

Áður hafði Stoke borið í víur en án árangurs auk þess sem tyrknest félög hafa verið á eftir kappanum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert