Senderos komin til AC Milan

Senderos klæðist búningi AC Milan í vetur.
Senderos klæðist búningi AC Milan í vetur. Reuters

Varnarmaðurinn Phillippe Senderos er komin á mála hjá AC Milan á lánssamningi til eins árs en Ítalirnir hafa forkaupsrétt á honum að þeim tíma loknum.

Stjóri Arsenal, Arsene Wenger, hefur lítil not haft fyrir Senderos eftir síðustu leiktíð þar sem Svisslendingurinn gerði sig sekan um allmörg slæm mistök í varnarlínu Arsenal. Skarð hans fyllir nú Mickael Silvestre sem keyptur var frá Manchester United fyrir stuttu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert